top of page

Uppskriftir og hugmyndir

Grænkálssalat með Rófuchutney dressingu

​Hráefni:

  • Grænkál

  • Grísk jógúrt

  • Rófuchutney frá Breiðargerði

  • Graskersfræ

  • Rúsínur

  • Smá salt

Hrærið tveimur kúfuðum matskeiðum af Rófuchutney út í 1,5 - 2 dl af grískri jógúrt. Saltið smávegis. 

Saxið grænkál og hrærið vel saman við jógúrt dressinguna. 

Bætið út í graskersfræjum og rúsinum eftir smekk. 

​

 

*Þessi uppskrift er í highlights á Instagram @breidargerdi 

Köld grillsósa

Hráefni:

  • Sýrður rjómi eða Grísk jógúrt

  • Gulróta eða Rófuchutney frá Breiðargerði

Hrærið 2-3 kúfuðum matskeiðum af Chutney út í eina dós af sýrðum rjóma. Smakkið til og bætið meira Chutney ef þarf.

*Sósa úr Gulrótachutney passar vel t.d með grillkjöti og gröfnu kjöti. 

*Sósa úr Rófuchutney smakkast vel bæði með kjöti og fisk og er geggjuð sem dýfa fyrir ferskt grænmeti

Kramdar kartöflur með Grænkálssalti

Hráefni: 

  • Kartöflur, frekar smáar

  • Olía

  • Grænkálssalt

  • PIpar

Sjóðið kartöflurnar í u.þ.b 12 mínutur, eða þar til nokkuð auðveldlega er hægt að stinga í þær með gaffli. 

Raðið þeim á ofnplötu og kremjið aðeins t.d með botninum á glasi. 

Penslið kartöflurnar með olíu, og kryddið með Grænkálssalti og smá svörtum pipar á báðum hliðum. 

Bakið við 180 gráður í u.þ.b 40 mínútur.

Ofnbakað Toppkál

Hráefni: 

  • Toppkál

  • Olía

  • Grænkáls eða Sellerísalt

  • Pipar

  • Hunang

  • Balsamic edik

Skiptið toppkálinu í tvennt eftir endilöngu, og skiptið svo hvorum helming í 2-4 báta eftir stærð. 

Hitið olíu á pönnu og brúnið kálibátana vel á öllum hliðum. 

Raðið kálinu í eldfast mót, kryddið með salti og pipar. 

Dreypið smá hunangi og balsamic ediki yfir og bakið við 180 gráður í 20-30 mínútur.

Gott bæði sem meðlæti eða aðalréttur

*Það er líka gott og rífa smá parmesan ost yfir, annað hvort áður en kálið er bakað, eða eftir að það kemur út úr ofninum. 

*Toppkálið má líka grilla í stað þess að steikja það á pönnu

Spergilkálssalat

Hráefni:

  • Vænn spergilkálshaus

  • 1 dós sýrður rjómi

  • 1 rauðlaukur

  • 1 1/2 dl rúsínur

  • 1 dl graskers eða sólblómafræ

  • 8 beikonsneiðar

  • 3 msk rauðvínsedik

  • 1 tsk hunang

Steikið beikonið þar til það er stökkt, látið kólna og skerið smátt. 

Hrærið saman sýrðan rjóma, hunang og rauðvínsedik. 

Saxið spergilkál og lauk frekar smátt og hrærið út í sýrða rjómann. 

Bætið við fræjum, beikoni og rúsínum. 

Salatið verður enn betra ef það fær að bíða í smá stund í kæli áður en það er borið fram.

Gott meðlæti með næstum öllu! 

*það má einnig nota kóralkál í þetta salat, eða blöndu af spergil- og kóralkáli

Ofnbakað Kóralkál með döðlum

Hráefni: 

  • Kóralkál

  • 1/2 Rauðlaukur

  • Olía

  • Grænkáls eða Sellerísalt

  • Pipar

  • 8-10 Döðlur

Skerið kóralkálið og rauðlaukinn í bita, það er betra að hafa þá ekki of smáa.

Hitið olíu á pönnu, steikið laukinn smá stund og bætið svo kálinu á pönnuna. 

Kryddið með salti og pipar, látið malla á pönnunni við meðalhita. 

Þegar kálið er alveg að verða eldað, er smátt skornum döðlum bætt við. 

*Það er best að elda kálið ekki alveg í gegn, heldur hafa smá bit í því.

*Þessi uppskrift virkar líka vel fyrir sykurertur, en þær þurfa bara örfáar mínútur á pönnunni til að verða tilbúnar. 

*Ef verið er að elda meira magn í einu, er þægilegra að blanda öllu saman og baka í eldföstu móti við 170 - 180°C í u.þ.b 20 mínútur til hálftíma 

Rófumauksúpa

Hráefni: 

  • 1,5 kg rófur

  • Olía

  • 1 stór laukur

  • 2 hvítlauksrif

  • 2 kubbar grænmetiskraftur

  • 1-2 dl rjómi
  • salt

  • pipar

  • karrý eða turmeric

  • Engifer

Skerið laukinn og hvítlaukinn, hitið olíu í potti og eldið þar til laukurinn er orðinn glær. 

Kryddið með salti, smá pipar og örlitlu af karrý (eða turmeric) og engifer. 

Skerið rófurnar, bætið þeim út í pottinn ásamt grænmetiskrafti og nóg vatni svo það fljóti yfir rófurnar . 

Sjóðið þar til rófurnar eru mjúkar í gegn, maukið allt saman með töfrasprota. 

Bætið rjómanum út í og smakkið til með salti og pipar

*ef þið viljið þynna súpuna má setja meira vatn, en þá gæti þurft meiri grænmetiskraft

Hunangsgljáðar Gulrætur

Hráefni: 

  • 500g Gulrætur

  • 50g smjör

  • 2 msk hunang

  • Grænkálssalt

  • Pipar

  • Ferskt timian

Skerið gulræturnar í 4-6 hluta endilangt

Bræðið smjör í potti við vægan hita, bætið hunanginu út í.

Raðið gulrótunum á plötu, stingið timiangreinum inn á milli

Hellið smjörblöndunni yfir, og kryddið með smá salti og pipar. 

Bakið í ofni við 200°C í 30-40 mínútur 

Grænkálssnakk

Hráefni: 

  • Vænt búnt Grænkál

  • 1-2 msk olía

  • 2 tsk hvítlauksduft

  • 1 tsk laukduft

  • 1/2 tsk salt

Fjarlægið stilkana úr grænkálinu og rífið hvert blað niður í nokkra hluta

Setjið grænkálið í skál ásamt olíunni og blandið vel saman svo olían þekji grænkálið alveg. 

Blandið kryddunum vel saman við

Raðið á ofnplötu og passið að bara sé einfalt lag af káli, látið það ekki skarast. Gæti þurft fleiri en eina plötu. 

Bakið í ofni við 140°C í 20-25 mínútur, eða þar til kálið er orðið stökkt án þess þó að það brenni.  

Tortilla pizzur með Spergilkáli

Hráefni: 

  • 2 tortilla kökur

  • Pizzasósa

  • Laukur

  • Ostur

  • Spergilkál

  • Hvítlaukur

  • Bacon, smátt skorið

  • Döðlur

  • Graskersfræ

Smyrjið tortillakökurnar með pizza sósu, setjið á þær smátt skorin lauk og ost yfir. 

Skerið spergilkál í frekar litla bita og setjið ofan á ostinn, nóg til þess að þekja næstum tortillakökuna. 

Bætið smátt skornum hvítlauk, döðlum og beikoni yfir og loks graskersfræjum. 

Það er ágætt að dreypa aðeins ólífuolíu yfir herlegheitin áður en þau fara inni í ofn. 

Bakið við 200°C þar til kökurnar eru farnar að brúnast á köntunum. 

Hamborgari með Gulrótachutney og beikoni

Hráefni: 

  • Hamborgari

  • Hamborgarabrauð
  • Ostur
  • Beikon
  • Gulrótachutney

  • Majónes

  • Salat

  • Tómatar

  • Gúrkur

Grillið hamborgarann og beikonið og hitið hamborgarabrauðið

Setjið majónes, salatblað, tómata og gúrkustneiðar í botninn, og góða slettu af Gulrótachutney á efra brauðið. 

Setið hamborgarann, ostinn og beikonið ofan á grænmetið, lokið borgaranum og njótið!

​

bottom of page